fbpx Skip to main content

Sogæðakerfið – stoðkerfið – taugakerfið

LÆRÐU AÐ KVEIKJA Á OFF 🛑 TAKKANUM OG NÚLLSTILLA 🔋
OPIÐ Á ALLT EFNI ÚT SUMARIÐ !!

Þú getur í ALLT sumar notað fræðsluna og myndböndin til þess að núllstilla líkamann, farið á þínum hraða og tekið æfingarnar eins oft og þú vilt. Góð leið til þess að komast í rútínu með einföldum en skilvirkum æfingum til þess að ná jafnvægi og næra líkama og sál!

Þjáist þú af krónískum bólgum og stoðkerfisverkjum, kvíða, svefntruflunum, höfuðverk, vöðvabólgu og/eða meltingartruflunum?

Þessi einkenni geta gefið til kynna að líkami þinn hafi gott af smá núllstillingu með því að losa stíflur í sogæðakerfinu, stilla taugakerfið, losa um spennu og borða hreinsandi fæðu, til að geta sinnt almennilega viðgerðarþjónustu og viðhaldi frumna í líkamanum.

Að núllstilla aðstoðar líkamann við að losa sig við varnarspennu, úrgangsefni, eiturefni og toxísk efni, gömul og notuð hormón  o.fl. Núllstilling styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið og gerir okkur sterkari þannig við þolum álag og áreiti betur í umhverfi okkar sem truflar starfssemi líkamans.

Viltu læra hvernig ÞÚ getur bætt umhverfið innra með þér svo að líkaminn geti gert við sig sjálfur !
Viltu læra skilvirka tækni til þess að;
-draga úr stress og streitu.
-minnka liðverki og bjúg.
-vinna á stoðkerfisverkjum.
-bæta meltinguna.
– minnka höfuðverk, pirringi og þokukenndri hugsanir.
-minnka þreytu og slen.

Á 6 vikum förum við yfir;
-Hvernig sogæðakerfið virkar og hvernig við getum opnað á helstu rásir þess.
-Hvað er flökkutaugin og hvernig virkar hún. Hvað getum við gert til að virkja og styrkja þessa mikilvægu taug.
-Notum hreyfiflæði og boltanudd til að vinna í stoðkerfi líkamans. Finna hvar okkar ójafnvægi liggur og hvar við þurfum að opna á eða styrkja svæði.
-Hreint mataræði og venjur til að auka betri meltingu. Frá Ásdísi Grasalækni.

Áhersla er að losa um spennu sem oft stelur frá okkur orku. Með því að rúlla og þrýsta á þessi spennusvæði koma fram jákvæð áhrif á orkukerfið, blóðrásarkerfið, sogæða- og ónæmiskerfið og uppskeran er slökun og jafnvægi.

BYRJUM 6. MAÍ og fyrsti LIVE tími.

INNIFALIÐ
-AÐRA HVERJA VIKU, Í 6 VIKUR er LIVE 30-45mín tími/fundur!
-Á hverjum þriðjudegi og laugardegi opnast fyrir fræðslu og/eða tíma ONLINE.
-Afsláttur af vörum Happy Hips.
-Fræðsla frá Ásdísi Grasalækni

-OPIÐ FYRIR ALLT EFNI ÚT SUMARIÐ!
-Facebook grúbba þar sem ég deili auka fræðslu og er til staðar fyrir ÞIG!
-Þú getur tekið tímana hvenær sem er þegar þér hentar og eins oft og þú vilt!

6 vikur – HEFST 6. maí
AÐGANGUR AÐ ÖLLU EFNI TIL 31. ÁGÚST !

Verð: 19.500kr

Dóra Margrét Sigurðardóttir

Á námskeiðinu Núllstilla líkamann lærði ég leið til þessa að örva sogæðakerfið sem skilaði sér strax frá fyrsta degi í minni vökvasöfnun. Ég lærði líka að ná dýpri og betri slökun með því að virkja flökkutaugina og hef sofið betur frá því að námskeiðið byrjaði. Sigrún er frábær kennari og kemur fróðleiknum frá sér á þægilegan og skemmtilegan hátt.

Anna Guðjóns

Líður alltaf ótrúlega vel eftir tíma. Fann strax eftir fyrsta tíma. Kennarinn útskýrði allt mjög vel og allt efnið sem fylgdi með námskeiðinu var mjög gott og áhugavert. Líðan hefur breyst til hins betra. Finn stóran mun í mjöðmum og öxlum.

Ragna Björt Einarsdóttir

Þetta var vel skipulagt og mjög fræðandi námsleið um kerfi sem maður hugsar ekki endilega alltaf til sem eitthvað sem þarfnast athygli og viðhalds. Takk fyrir mig!

FRÁBÆR kennsla, opin, einlæg, skýr og heiðarleg. Mjög gott og gagnlegt fræðsluefni sem fylgdi með og hjálpaði manni að undirbúa sig fyrir tímann og dýpka skilninginn á því sem var verið að gera!

Lydía Ósk Ómarsdóttir

Mjög lærdómsríkt, skemmtilegt og áhugahvetjandi námskeið. Fannst live tímarnir mjög notalegir og góðir. Kennarinn með góða nærveru og orku. Námskeiðið vakti áhuga á sjálfsrækt.

SKRÁNING

NÚLLSTILLA SUMAR – 6 VIKUR OG OPIÐ Á ALLT EFNIÐ ÚT SUMARIÐ


    Núllstilla Sumar 19.500kr


    MillifærsluGreiðslukorti