NUDDAÐU BURT VÖÐVAÞREYTU
Happy hips boltakennarinn kemur til fyrirtækis og stjórnar æfingum í 20 mínútur – smellpassar alveg í kaffitímann. Það hefur aldrei verið eins auðvelt að huga að heilsunni því hvorki þarf að skipta um föt né fara úr húsi.
ATH – Nauðsynlegt er að hafa gott veggpláss þar sem tíminn fer fram, hver iðkandi þarf að geta notað boltann upp við vegg.
Í tímunum eru notaðir sérstakir boltar við að nudda spennu og vöðvaþreytu úr líkamanum. Búið er að þróa sérstaka tækni sem er einstaklega áhrifarík og einföld í framkvæmd fyrir hvern sem er.