Fyrir þá sem hlaupa, hjóla eða fara í fjallgöngur er nauðsynlegt að huga sérstaklega að mjaðmasvæðinu þvi þar getur myndast mikil spenna og stífleiki við högg og stærri skref sem fylgja oftast þessum íþróttum!
👉Undir hælnum og táberginu er fituvefur sem virkar sem höggdempun fyrir fótinn.
👉Liðamót í ökklum, hnjám og mjöðmum gefa eftir við álag og virka sem höggdempun,
👉Bakið er S laga og virkar þannig einnig á sama hátt.
👉Vöðvarnir slaka og spenna og virka þannig einnig sem höggdempun fyrir líkamann.
Svo þessir mikilvægu demparar líkamans virki vel er mjög mikilvægt að halda bandvef, vöðvum, hrygg og liðamótum í líkamanum heilbrígðum.
Í þessum tímum vinnum við í:
– Skilvirku bandvefsnuddi á iljum, ökklum, kálfum, lærvöðvum, rassvöðvum, djúpu mjaðmavöðvum, mjóbaki og herðum.
– Hreyfiflæði sem einblína á teygjur/opnun fyrir iljar, aftanvert og framanvert læri, rassvöðva, mjóbak og hrygg.
– Losa um trigger-punkta sem setjast að í vöðvum og bandvef.
– Virkja og teygja á stóru lær – og rassvöðvum sem notast mikið við þessar hreyfingar.
– Réttri öndun til að bæta súrefnisupptöku og minnkar álag á öndunarfæri.
– Slökun til að róa líkama og sál.