fbpx Skip to main content

Næsti tími sunnudag 12. nóvember kl. 11:00

BANDVEFSNUDD OG HREYFIFÆRNI!

-Ljúfar  90 mínútur að endurstilla líkamann.
-Byrjum á góðu hreyfiflæði til að liðka og kveikja á líkamanum.
-Endurnærandi bandvefsnudd til að losa um spennu og auka vökvaflæði!
-Nudd til að virkja Flökku/Vagus taugina til að róa taugakerfið!
-Góð slökun

Aukin orka, jafnvægi og betri líðan.

Með því að nota bolta til að nudda líkamann erum við að mýkja upp og losa um vefina, minnka vöðvaspennu, auka blóðflæði til svæðisins og fylla taugabrautir af jákvæðum boðum, boðum um vellíðan en draga úr sársaukaboðum sem fyrir eru. Með nuddi er einnig hægt að losa um samgróninga í vöðvum, festum þeirra (sinum) og bandvef.

Slökun í lok tímans gefur vöðvum, bandvef og huga tækfæri til að slaka mjög djúpt á og líkamanum að opnast og endurnærast.

Hvar: Kirkjulundur 19
Hvenær: Sunnudag 12. nóvember kl. 11:00

Verð  3.000 kr stakur sunnudagur!
Klippikort 21.900 kr 10. tímar

SKRÁNING


    Stakur tími 2800Klippikort 21.900


    MillifærsluGreiðslukortiKlippikort